MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA HJÁ Litlu Kvíðamiðstöðinni

 

Litla KMS leggur áherslu á örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga. Litla KMS leitast við að takmarka vinnslu persónuupplýsinga eins og hægt er og safnar ekki persónuupplýsingum umfram það sem nauðsynlegt er.

Öll vinnsla á persónuupplýsingum, þ.m.t. öflun, skráning, vistun og meðferð þeirra á okkar vegum, lýtur lögum nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og öðrum reglum sem settar hafa verið á grundvelli persónuverndarlaga („persónuverndarlög“).

HVAÐA UPPLÝSINGUM SÖFNUM VIÐ Í GEGNUM VEFINN?

Upplýsingar sem þú lætur okkur í té
Vera má að þú látir okkur í té með beinum eða óbeinum hætti persónuupplýsingar er varða þig, til dæmis þegar þú bókar tíma eða greiðir fyrir þjónustu sem við bjóðum á vefsíðu okkar, hefur samband við okkur gegnum samskiptabox eða með öðrum hætti. Þessar upplýsingar geta verið:

  • Persónugreinanlegar upplýsingar – nafn, heimilisfang, netfang, kennitala, símanúmer o.s.frv.
  • Greiðsluupplýsingar – greiðslukortaupplýsingar

 

Litla KMS gætir þess að sú vinnsla persónuupplýsinga sem við höfum með höndum, sem ábyrgðaraðili vinnslu, sé í samræmi við persónuverndarlög.

Hér að neðan er að finna upplýsingar um söfnun og vinnslu persónuupplýsinga í gegnum vef Litlu KMS. Hér að neðan er einnig að finna upplýsingar um réttindi þín og hvernig þú getur nýtt þau.

HVAÐ GERUM VIÐ VIÐ UPPLÝSINGARNAR?

Allar þær upplýsingar sem Litla KMS safnar eru nýttar til þess að framkvæma og bæta þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini. Þannig söfnum við þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að efna þjónuistubeiðni eða til að svara fyrirspurnum þínum.

MEÐ HVERJUM DEILUM VIÐ UPPLÝSINGUNUM?

Litla KSM deilir í sumum tilfellum upplýsingum með aðilum sem taka að sér tiltekna vinnslu upplýsinganna fyrir hönd okkar og þá einungis í þeim tilgangi sem tilgreindur er.

HVERSU LENGI GEYMUM VIÐ UPPLÝSINGARNAR?

Það er mismunandi hversu lengi við geymum upplýsingarnar

Fyrirspurnir sem berast gegnum „hafðu samband“ form á vefnum, er eytt eftir notkun . Önnur gögn er innihalda persónuupplýsingar eru einungis geymd í þann tíma sem nauðsynlegt er og að þeim tíma loknum er þeim eytt í samræmi við verklag Litlu KMS þar um.

RÉTTUR ÞINN TIL AÐ FÁ AÐGANG AÐ UPPLÝSINGUNUM, LÁTA LEIÐRÉTTA ÞÆR EÐA EYÐA ÞEIM

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að fá upplýsingar um og aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við varðveitum um þig. Þú getur einnig í einhverjum tilvikum átt rétt á að persónuupplýsingar um þig verði leiðréttar, framsendar annað eða þeim eytt

VIÐ NOTUM EFTIRFARANDI FÓTSPOR (E. COOKIES)

Fótspor sem notuð eru til að safna upplýsingum um hvernig vefsíðan er notuð og til að auka þjónustu við þig. M.a. þegar þú bókar tíma eftir fyrsta skipti, birtast persónuupplýsingar, eins og nafn, símanúmer, netfang og aðrar upplýsingar sem tengjast samskiptum við þig sjálvirkt. Við notum upplýsingarnar við skýrslugerð í þeim tilgangi að gera síðuna notendavænni. Fótsporin safna upplýsingunum með dulkóðun, sem dæmi fjöldi notenda síðunnar, hvaðan notendur koma og hvaða síður á vefsíðunni það heimsótti Google Analytics.

Lestu upplýsingar um persónuvernd og utanumhald gagna hjá Google.

HVERNIG GET ÉG STÝRT NOTKUN Á FÓTSPORUM?

Það að leyfa fótspor er ekki alltaf nauðsynlegt fyrir vefsíðuna og grundvallar virkni hennar. Samt sem áður, með því að leyfa þau getum við bætt upplifun þína á síðunni. Þú getur eytt út eða lokað á þessi fótspor, en með því mun ákveðin virkni eða þættir á síðunni ekki virka sem skyldi.

Svona stillir þú fótspor á síðunni í mismunandi vöfrum:

Hafðu samband

Við erum ekki við eins og er, en sendu okkur póst og við verðum í sambandi

Start typing and press Enter to search